Notendaskilmálar
Uppfært 24. september 2026
Þetta eru drög. Þau hafa ekki verið yfirfarin enn.
Þessir skilmálar eru samningurinn milli þín og Arcova ehf., kennitala 490925-3680, Jarpstjörn 4, 113 Reykjavík, um Arcova-appið, aðganginn þinn og Arcova-kubbinn. Með því að nota Arcova samþykkir þú þá.
Hvað Arcova er
Kubburinn stingst í símann þinn, vinnur hljóðið sem síminn spilar og sendir það í þín eigin heyrnartól um Bluetooth. Appið stýrir kubbnum, spilar efni úr safninu okkar og skráir hve lengi þú hlustar miðað við daglegt markmið sem þú setur þér.
Arcova er hljóðvara fyrir neytendur. Hún er ekki lækningatæki og lofar engu um hvaða áhrif hlustunin hefur á þig.
Aðgangurinn þinn
- Einn aðgangur á mann. Notaðu netfang sem þú getur tekið við pósti á.
- Haltu innskráningarupplýsingunum þínum fyrir þig.
- Þú getur eytt aðganginum hvenær sem er í appinu.
Við getum lokað aðgangi sem brýtur gegn þessum skilmálum. Þegar hægt er vörum við þig við fyrst.
Notkun Arcova
Ekki eiga við fastbúnað kubbsins, bakhanna appið eða kubbinn umfram það sem lög leyfa þér, trufla þjónustuna eða afrita eða endurselja efnissafnið.
Hvað er okkar
Appið, fastbúnaðurinn, efnissafnið og Arcova-nafnið og -merkið tilheyra okkur eða þeim sem veita okkur leyfi til að nota það. Á meðan þú fylgir þessum skilmálum máttu nota appið og safnið til eigin hlustunar.
Kubburinn
Þegar þú kaupir kubb hefurðu þau réttindi sem íslensk neytendalög veita þér. Hafðu hljóðstyrkinn þægilegan og fylgdu leiðbeiningunum sem fylgja heyrnartólunum þínum.
Önnur þjónusta
Innskráning með Apple, Google eða Facebook og niðurhal appsins úr App Store eða Google Play falla líka undir skilmála þeirra. Á Apple-tæki gildir staðlaður notendaleyfissamningur Apple (Licensed Application End User License Agreement) samhliða þessum skilmálum.
Breytingar og uppfærslur
Við getum bætt við, breytt eða fjarlægt eiginleika. Sumar fastbúnaðaruppfærslur eru nauðsynlegar til að kubburinn virki áfram með appinu. Við látum þig vita áður en breyting tekur eitthvað mikilvægt af þér.
Réttindi þín
Ekkert í þessum skilmálum takmarkar réttindi þín sem neytanda samkvæmt íslenskum lögum eða lögum þess EES-ríkis þar sem þú býrð.
Samningnum slitið
Þú getur slitið samningnum með því að eyða aðganginum. Við getum slitið honum ef þú brýtur alvarlega gegn þessum skilmálum. Þá er farið með gögnin þín eins og persónuverndarstefnan okkar lýsir.
Ágreiningur
Um þessa skilmála gilda íslensk lög. Skrifaðu okkur fyrst. Ef við náum ekki saman geturðu lagt kvörtun fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa eða dómstóla. Ef þú býrð annars staðar á EES heldurðu vernd laga heimalands þíns og getur höfðað mál þar.
Breytingar á skilmálunum
Við breytum dagsetningunni efst þegar við breytum skilmálunum og látum þig vita áður en mikilvæg breyting tekur gildi. Ef þú samþykkir ekki breytingu geturðu eytt aðganginum.
Tungumál
Skilmálarnir eru á ensku og íslensku. Ef útgáfunum ber ekki saman gildir sú sem er þér hagstæðari.
Hafðu samband
arcova@arcova.is